logo-for-printing

26. apríl 2004

Vorfundur fjárhagsnefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Laugardaginn 24. apríl 2004 var haldinn í Washington fundur fjárhagsnefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (International Monetary and Financial Committee). Formennska í kjördæmi Norðurlanda og Eystrasaltslanda hefur verið í höndum Noregs frá 2004. Fjármálaráðherra Noregs, Per-Kristian Foss, er því fulltrúi kjördæmisins í fjárhagsnefndinni og talar hann fyrir hönd þess. Ræða kjördæmisins er birt í heild sinni á vefsíðum Seðlabanka Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Ræða kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltslanda 2004 (pdf-skjal, 610 KB)

 

Til baka