logo-for-printing

05. febrúar 2004

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands

Frá miðju ári 1995 hefur Seðlabanki Íslands mánaðarlega gefið út frétt með helstu liðum úr efnahagsreikningi sínum í lok liðins mánaðar. Í stað helstu liða úr efnahagsreikningi sínum mun bankinn héðan í frá birta efnahagsreikning eftir lok hvers mánaðar. Fréttin verður hér eftir sem hingað til birt á heimasíðu bankans. Um leið hættir bankinn annarri reglulegri dreifingu og birtingu á efnahagsreikningi sínum. Yfirleitt verða sýndar upplýsingar frá lokum síðasta mánaðar, lokum næstliðins mánaðar og liðinna áramóta auk breytinga á einstökum liðum. Frávik verða við birtingu efnahagsins í lok janúar.

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok janúar 2004
Í meðfylgjandi yfirliti er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok janúar 2004 og til samanburðar í lok desember 2003 og í lok desember 2002.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans minnkaði í janúar um 1,7 milljarða króna og nam 56,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 812 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 7 milljarða króna í janúar í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a. var greint frá í nóvemberhefti Peningamála 2003. Þar af keypti bankinn jafnvirði um 5,5 milljarða króna í einum viðskiptum við einn viðskiptavakanna á gjaldeyrismarkaði. Um leið gerði bankinn gjaldmiðlaskiptasamning við viðskiptavakann og seldi honum Bandaríkjadali að andvirði 6,9 milljarða króna sem bankinn kaupir aftur í apríl n.k.

Gengi íslensku krónunnar styrktist um 3,3% í janúar.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,9 milljörðum króna í janúarlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 0,7 milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um nær 18 milljarða króna í janúar og námu 24 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu einnig lítillega og námu 4,2 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 7,8 milljarða króna í janúar og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 30 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans hækkaði í janúar um 10,7 milljarða króna og nam 32,4 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 127kb)

Nr. 4/2004
5. febrúar 2004

 

Til baka