logo-for-printing

22. janúar 2004

Hagvísar Seðlabanka Íslands í janúar 2004

Hagvísar Seðlabanka Íslands fyrir janúarmánuð eru komnir út. Vakin er athygli á því að framsetningu efnis í Hagvísum hefur verið breytt nokkuð. Meðal nýjunga er að í lok yfirlitskafla er kastljósi sérstaklega beint að einum tilteknum hagvísi eða flokki hagvísa. Að þessu sinni er það vinnumarkaður. Fram kemur að hægt dregur úr atvinnuleysi þrátt fyrir aukið framboð lausra starfa, sem kann að benda til þess að atvinna sem í boði er henti ekki hinum atvinnulausu.

Hægt er að skoða Hagvísana í svokölluðum pdf-skjölum með því að fara á sérstaka síðu fyrir ritið:

Hagvísar Seðlabanka Íslands

Til baka