logo-for-printing

09. janúar 2004

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok desember 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í desember 2003 og frá ársbyrjun 2003.

Þar sem áramótauppgjöri og endurskoðun er ekki að fullu lokið eru tölur fyrir desemberlok 2003 bráðabirgðatölur og kunna þær að taka breytingum í endanlegu uppgjöri.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst í mánuðinum um 0,3 milljarða króna og nam 58,1 milljarði króna í desemberlok (jafnvirði 819 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans vegna gjaldeyrisforða voru engin í lok ársins en námu rúmlega 16 milljörðum króna í byrjun þess.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 3,7 milljarða króna í desember í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a. var greint frá í maíhefti Peningamála 2003. Gengi íslensku krónunnar styrktist um 1,4% í desember og um 1,2% á árinu öllu.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,9 milljörðum króna í desemberlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf útgefin af ríkissjóði 0,7 milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 17,6 milljarða króna í desember og námu 24 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu lítillega og námu 4 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Innstæður innlánsstofnana lækkuðu um 16,7 milljarða króna í mánuðinum en í desember var bindiskylda lækkuð, almennum innstæðum breytt í innstæður með bindiákvæðum og sérstökum bindireikningum lokað.

Nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 3,1 milljarð króna í desember og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 22,1 milljarði króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans lækkaði í desember um 11,6 milljarða króna og nam 21,7 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 84kb)

Nr. 2/2004
9. janúar 2004

 

Til baka