logo-for-printing

30. desember 2003

Innstæðubréf gefin út fyrir 4,5 milljarða króna

Uppboð á innstæðubréfum til 14 daga fór fram hjá Seðlabanka Íslands í dag. Uppboðið var með tilboðsfyrirkomulagi. Heildarfjárhæð í uppboðinu var 8 ma.kr. og hámarksávöxtun var 4,8%. Alls bárust 5 tilboð. Hæsta ávöxtun tilboða var 4,8% og sú lægsta 4,65%.
Tekið var tilboðum fyrir samtals 4,5 ma.kr. og var ávöxtun í uppboðinu 4,8%.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs í síma 569-9600.

Fréttir Seðlabanka Íslands eru birtar á heimasíðu bankans um leið og þær eru gefnar út (http://www.sedlabanki.is).

Nr. 1/2003
30. desember 2003

Til baka