logo-for-printing

22. desember 2003

Seðlabanki Íslands gefur út innstæðubréf

Í nóvemberhefti ársfjórðungsrits Seðlabanka Íslands Peningamála var greint frá því að bankinn myndi beita aðgerðum til þess að koma í veg fyrir að kaup hans á gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði leiddu til innlendrar peningaþenslu. Í frétt bankans um nýjar reglur um bindiskyldu 2. desember sl. var greint frá því að bankinn myndi einnig beita aðgerðum til þess að vinna gegn peningaþenslu af völdum breytinganna á bindiskyldu.

Með hliðsjón af framangreindu hefur Seðlabanki Íslands ákveðið að efna til uppboðs á 14 daga innstæðubréfum þriðjudaginn 30. desember n.k. Tilgangur útgáfunnar verður að draga úr lausafé í umferð og þar með úr þensluáhrifum þess. Tilkynnt verður um heildarfjárhæð uppboðsins þriðjudaginn 30. desember. Seðlabankinn mun efna til frekari uppboða á innstæðubréfum eftir því sem aðstæður gefa tilefni til. Lánastofnunum mun einnig standa til boða að kaupa innstæðubréf til 90 daga. Þau verða ekki seld á uppboði.

Bindiskyldar lánastofnanir geta tekið þátt í uppboðinu. Að öðru leyti gilda um þessi viðskipti reglur Seðlabanka Íslands um viðskipti bindiskyldra lánastofnana við bankann nr. 385 frá 29. maí 2002.

Nánari upplýsingar veita Birgir Ísl. Gunnarsson formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands og Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs í síma 569-9600.

Nr. 34/2003
22. desember 2003

 

Til baka