logo-for-printing

06. nóvember 2003

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok október 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í október 2003 og frá ársbyrjun 2003. 

Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst í mánuðinum um 5,4 milljarða króna og nam 51,7 milljörðum króna í októberlok (jafnvirði 680 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans vegna gjaldeyrisforða eru engin, en um síðustu áramót námu þau rúmlega 16 milljörðum króna.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 4,4 milljarða króna í október í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a var greint frá í maíhefti Peningamála 2003. Gengi íslensku krónunnar veiktist um 0,3% í októbermánuði.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 3,9 milljörðum króna í októberlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 0,7 milljörðum króna og lækkuðu þau um 0,5 milljarða króna en í mánuðinum voru ríkisbréf á gjalddaga.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 11,4 milljarða króna í október og námu 44,3 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítið og námu 3,2 milljörðum króna í mánaðarlok. 
 
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 11,6 milljarða króna í október og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 16,5 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans hækkaði í október um 5,8 milljarða króna og nam 37,4 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 83 kb)

Nr. 28/2003
6. nóvember 2003

 

Til baka