logo-for-printing

04. september 2003

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok ágúst 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í ágúst 2003 og frá ársbyrjun 2003. 
 
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst í mánuðinum um 4,5 milljarða króna og nam 41 milljarði króna í lok ágúst (jafnvirði 512 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Erlend skammtímalán bankans vegna gjaldeyrisforða eru engin, en um síðustu áramót námu þau rúmlega 16 milljörðum króna.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 4 milljarða króna í ágúst í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a var greint frá í maíhefti Peningamála 2003.  Gengi íslensku krónunnar veiktist um 1,1 % í ágústmánuði.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,3 milljörðum króna í ágústlok miðað við markaðsverð.  Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,2 milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 5,4 milljarða króna í ágúst og námu 61,5 milljörðum króna í lok mánaðarins.  Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu einnig og námu 7,2 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 5,8 milljarða króna í ágúst og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 22,8 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans hækkaði í ágúst um 3,2 milljarða króna og nam 41 milljarði króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.
 

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal, 83KB)

Nr. 24/2003
4. september 2003

Til baka