logo-for-printing

12. ágúst 2003

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 16,9 milljarða króna

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 12. ágúst. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 16,9 milljarðar króna en á innlausn voru 26,8 milljarðar króna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 19. ágúst n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs í síma 569-9664.

Fréttin í heild með stöplariti

Nr. 33/2003
12. ágúst 2003

Til baka