logo-for-printing

22. júlí 2003

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 45,1 milljarð króna

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 22. júlí. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 5,3 %. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 45,1 milljarð króna en á innlausn voru 37 milljarðar króna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 29. júlí n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs í síma 569-9664.

Fréttin í heild með stöplariti

Nr. 30 /2003
22. júlí 2003

Til baka