logo-for-printing

04. júlí 2003

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

 

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok júní 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í júní 2003 og frá ársbyrjun 2003.  <'xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Gjaldeyrisforði Seðlabankans stóð því sem næst í stað milli mánaða og nam 36,9 milljörðum króna í lok júní (jafnvirði 483 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Erlend skammtímalán bankans lækkuðu í mánuðinum um 5,5 milljarða króna og námu þau 4,3 milljörðum króna í lok hans.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 3,5 milljarða króna í júní, og er það er í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem m.a var greint frá í maíhefti Peningamála.  Gengi íslensku krónunnar veiktist um 4,3% í júní.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,3 milljörðum króna í júnílok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,2 milljörðum króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 3,4 milljarða króna í júní og námu 62,8 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu lítillega og námu 8,0 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 1,4 milljarða króna í júní og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 24,5 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans hækkaði í júní um 1,7 milljarða króna og nam það 34,4 milljarði króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.


 

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Í milljónum króna

    Staða í lok tímabils

    Hreyfingar 2003

Desember

Júní

Frá ára-

Í

Eignaliðir :

2002

2003

mótum

júní

Gjaldeyrisforði

37.194

36.883

-312

-43

   Gull

1.727

1.663

-63

42

   Erlendur gjaldeyrir

33.418

33.225

-193

-191

   SDR

12

7

-5

0

   Gjaldeyrisstaða IMF

2.038

1.987

-51

105

Markaðsskráð verðbréf

5.260

4.328

-932

42

   Ríkissjóðs

1.816

1.209

-606

16

   Annarra

3.445

3.119

-326

27

Kröfur á innlánsstofnanir

69.141

62.844

-6.297

-3.411

Kröfur á aðrar fjármálastofnanir

8.227

8.025

-202

135

Skuldaliðir:

Erlendar skuldir til skamms tíma

16.499

4.330

-12.169

-5.527

Seðlar og mynt

9.590

9.935

345

266

Almennar innstæður innlánsstofnana

1.164

2.595

1.430

1.001

Staða á bindireikningum innlánsstofnana

21.837

21.809

-27

439

Almennar innstæður annarra fjármálastofnana

75

13

-63

1

Staða á bindireikningum annarra fjármálastofnana

1.258

786

-472

113

Liðir til skýringar :

   Gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó

20.696

32.553

11.857

5.484

   Kröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó

-20.846

-24.455

-3.609

1.375

   Kröfur á aðra, brúttó

77.454

70.986

-6.469

-3.268

   Grunnfé

32.590

34.339

1.749

1.706

 

Skýringar:

Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Erlendur gjaldeyrir sýnir innstæður í erlendum bönkum og erlenda verðbréfaeign bankans. Gjaldeyrisstaða við IMF sýnir hreina innstæðu bankans hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innláns­stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

Nr. 20/2003

4. júlí 2003

Til baka