logo-for-printing

10. júní 2003

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 36,1 milljarð króna

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 10. júní. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 5,3 %. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 36,1 milljarður króna en á innlausn voru 40,5 milljarðar króna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 18. júní n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs í síma 569-9664.

Fréttin í heild með stöplariti

Nr. 24 /2003
10. júní 2003

Til baka