logo-for-printing

03. apríl 2003

Endurskoðaður samstarfssamningur Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins

Birtur hefur verið á heimasíðunni endurskoðaður samstarfssamningur Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins.  Í samningnum er nú kveðið með skýrari hætti á um samstarf þessara stofnana um mat á hugsanlegri kerfisáhættu á fjármálamarkaði og viðbrögð við slíkum aðstæðum.  Þá er birtur samningur Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands vegna greiðslu- og uppgjörskerfa þar sem kveðið er á um hlutverk þessara stofnana í umsjón og eftirliti með greiðslu- og uppgjörskerfum.

Til baka