logo-for-printing

06. mars 2003

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

 

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok febrúar 2003 og til samanburðar í lok desember 2002 ásamt breytingum í febrúar 2003 og frá ársbyrjun 2003. 

Gjaldeyrisforði Seðlabankans stóð því sem næst í stað milli mánaða og nam 36,1 milljörðum króna í lok febrúar (jafnvirði 465 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlend skammtímalán bankans lækkuðu í mánuðinum um 1,8 milljarða króna og námu þau 11,1 milljarði króna í lok hans.

Seðlabankinn keypti gjaldeyri á innlendum millibankamarkaði fyrir 2,2 milljarða króna í febrúar, og er það er í samræmi við áætlun hans um aðgerðir til að styrkja gjaldeyrisstöðu sína sem kynnt var í fréttatilkynningum bankans nr. 28/2002 og 2/2003. Gengi íslensku krónunnar stóð því sem næst í stað í febrúar og hafði styrkst um 2,9% frá áramótum.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 4,7 milljörðum króna í febrúar lok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,2 milljörðum króna, en þau lækkuðu um 0,6 milljarða króna í mánuðinum. Í byrjun mánaðarins voru spariskírteini á gjalddaga að fjárhæð 0.6 milljarðar króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 0,8 milljarða króna í febrúar og námu 74,3 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu lítillega og námu 8,1 milljarði króna í mánaðarlok. 

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 5,7 milljarða króna í febrúar og námu nettóinnstæður ríkissjóðs 17,9 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans jókst í febrúar um 7,3 milljarða króna og nam það 44,4 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflum

Nr. 7/2003
6. mars 2003

 

Til baka