logo-for-printing

05. mars 2003

Málstofur Seðlabanka Íslands vorið 2003

Á næstu mánuðum verða haldnar í Seðlabanka Íslands sjö málstofur. Fyrsta málstofan verður mánudaginn 10. mars nk., en þá fjallar Jens Thomsen, bankastjóri danska seðlabankans, Danmarks Nationalbank, um Danmörku og evruna. Síðar verður fjallað um viðskiptahallann sem hvarf, inngrip á gjaldeyrismarkaði og áhrif á gengi krónunnar, gengislækkun og jafnvægisatvinnuleysi, ál og útflutning, upptöku evru og vexti á Íslandi og sveigjanleg nafnlaun á Íslandi.

Sjá nánari upplýsingar á sérstakri síðu um málstofurnar.

Til baka