logo-for-printing

04. mars 2003

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 43,3 milljarða króna

 

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 4. mars. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 43,3 milljarðar króna en á innlausn voru 46,5 milljarðar króna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 11. mars n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9664.

Fréttin í heild með stöplariti

Nr. 10/2003
4. mars 2003

 
Til baka