logo-for-printing

18. febrúar 2003

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 46,5 milljarða króna

 

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 18. febrúar. Samningstíminn er  14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 5,3%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 46,5 milljarðar króna en á innlausn voru 45,8 milljarðar króna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 25. febrúar n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9664.

Fréttin í heild með stöplariti

 

Nr. 8/2003
18. febrúar 2003

 
Til baka