logo-for-printing

14. janúar 2003

Birgir Ísleifur Gunnarsson endurskipaður formaður bankastjórnar

Forsætisráðherra hefur endurskipað Birgi Ísleif Gunnarsson formann bankastjórnar Seðlabanka Íslands. Núverandi skipunartímabil Birgis rennur út í lok janúar en með nýrri skipun verður Birgir Ísleifur bankastjóri og formaður bankastjórnar til loka júlí 2006. Birgir hefur verið seðlabankastjóri frá 1. febrúar árið 1991 og formaður bankastjórnar frá 1. maí 1994. Þrír bankastjórar eru í bankastjórninni. Aðrir bankastjórar eru Eiríkur Guðnason og Ingimundur Friðriksson.

Sjá nánar um stjórn og skipulag Seðlabanka Íslands.

Til baka