logo-for-printing

27. desember 2002

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 43,6 milljarða króna

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, föstudaginn 27. desember. Samningstíminn er 11 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 5,8%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 43,6 milljarðar króna en á innlausn voru 49 milljarðar króna. Næsta uppboð er fyrirhugað 3. janúar n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9664.

Fréttin í heild með stöplariti

Nr. 52/2002
27. desember 2002

 

 

Til baka