logo-for-printing

05. september 2002

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í ágúst 2002

Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,1 milljarð króna í ágúst og nam 37,5 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 439 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Erlend skammtímalán bankans drógust saman um 2,2 milljarða króna í mánuðinum og námu 17,9 milljörðum króna í lok hans.  Þessar breytingar má rekja til lánahreyfinga ríkissjóðs.  Gengi íslensku krónunnar veiktist í mánuðinum um tæp 3%.

Í mánuðinum var gerður framvirkur samningur um sölu á gjaldeyri við innlánsstofnun, en Seðlabankinn hefur skuldbundið sig til að selja stofnuninni gjaldeyri samtals að fjárhæð 3,3 milljarðar króna í þremur áföngum á tímabilinu september 2002 til mars 2003.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,1 milljarði króna í ágústlok miðað við markaðsverð. Þar af námu markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 1,7 milljörðum króna. 

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir drógust saman um 4,5 milljarða króna í júlí og námu 78,6 milljörðum króna í lok mánaðarins.  Kröfur á aðrar fjármálastofnanir breyttust lítillega í mánuðinum og námu 6 milljörðum króna í mánaðarlok. 

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 2,5 milljarða króna í ágúst og voru neikvæðar um 25 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 25 milljörðum króna.

Grunnfé bankans stóð því sem næst í stað í ágúst og nam það 38,8 milljörðum króna í mánaðarlok.

Fréttin í heild sinni með töflu (pdf-skjal, 80 kb)

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðal­bókari í síma 569-9600.


                31/2002
5. september 2002

Til baka