logo-for-printing

30. ágúst 2002

Seðlabanki Íslands lækkar vexti

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans í endurhverfum viðskiptum við lánastofnanir um 0,3 prósentur í 7,6% frá næsta uppboði sem haldið verður 3. september n.k.

Seðlabankinn lækkaði síðast vexti í endurhverfum viðskiptum um 0,6 prósentur 1. ágúst sl. Með vaxtalækkuninni sem nú hefur verið ákveðin hefur bankinn lækkað þessa vexti samtals um 2,5 prósentur frá byrjun apríl sl. og um 3,8 prósentur frá því að þeir urðu hæstir á fyrri hluta árs 2001.

Í ársfjórðungsriti sínu Peningamálum sem gefið var út 1. ágúst sl. gerði Seðlabankinn grein fyrir mati sínu á stöðu og horfum í efnahags- og peningamálum og birti nýja verðbólguspá. Í inngangi ritsins var greint frá ákvörðun bankastjórnar um að lækka vexti um 0,6 prósentur frá 1. ágúst og síðan sagði: 'Þeir verða lækkaðir frekar á komandi mánuðum ef framvindan staðfestir að verðbólgumarkmið bankans muni nást og þróun eftirspurnar verður eins og nú er útlit fyrir. Vaxi eftirspurn hraðar gæti þetta auðvitað breyst.'

Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,5% í ágúst og var það nokkru meiri lækkun en búist var við og meiri lækkun en fólst í verðbólguspá bankans sem birt var í byrjun ágúst. Í gær birti Seðlabanki Íslands Hagvísa ágústmánaðar á heimasíðu sinni á veraldarvefnum. Í þeim kemur m.a. fram að vísbendingar séu nú um að innlend eftirspurn sé tekin að glæðast á ný eftir langt tímabil samdráttar. Þessi merki sjáist m.a. í greiðslukortaveltu, innflutningi og tekjum ríkissjóðs. Þótt botni samdráttarins kunni að hafa verið náð sé töluverður slaki til staðar og alls ekki sjálfgefið að umtalsverð varanleg uppsveifla sé hafin. Árstíðarleiðrétt atvinnuleysi sé enn að vaxa og skuldabyrði heimila og fyrirtækja muni hefta möguleika þeirra til að auka umsvif sín enn um sinn.

Breyting vísitölu neysluverðs í ágúst og upplýsingarnar sem birtast í Hagvísum breyta í litlu myndinni sem dregin var upp í ágústhefti Peningamála. Lækkun vaxta nú er því í samræmi við það sem gefið var í skyn í inngangi Peningamála og vitnað var til hér að framan.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísleifur Gunnarsson formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands í síma 569 9600.

Nr. 29/2002
30. ágúst 2002

Til baka