logo-for-printing

20. ágúst 2002

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 42,8 milljarða króna

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 20. ágúst. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 7,9%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 42,8 milljarðar króna en á innlausn voru 50,6 milljarðar króna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 27. ágúst n.k.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9664.

Stöplarit yfir endurhverf viðskipti

 

Nr. 34/2002
20. ágúst 2002

 

Til baka