logo-for-printing

03. júlí 2002

Skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um Ísland

Í dag birti Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn skýrslu um Ísland á heimasíðu sinni (www.imf.org). Um er að ræða skýrslu sem samin var eftir reglubundna árlega heimsókn sérfræðinga sjóðsins hingað til lands í mars síðastliðnum. 

Álit sendinefndarinnar í lok heimsóknar í mars var birt í frétt Seðlabanka Íslands nr. 11/2002, 3. apríl 2002.

Skýrslan var rædd í framkvæmdarstjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 21. júní sl. Í kjölfar umræðunnar í stjórn sjóðsins er gefin út frétt sem einnig er birt á heimasíðu hans.
 
Nánari upplýsingar veita Birgir Ísleifur Gunnarsson formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands og Jón Sigurgeirsson framkvæmdastjóri alþjóðasviðs bankans í síma 569-9600

Nr. 23/2002
3. júlí 2002

Til baka