logo-for-printing

26. mars 2002

Seðlabanki Íslands lækkar vexti

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka ávöxtun í endurhverfum viðskiptum bankans við lánastofnanir um 0,5 prósentur frá næsta uppboði á endurhverfum samningum sem haldið verður 2. apríl n.k. Vextir á innstæðum lánastofnana í Seðlabankanum lækka um 0,5 prósentur frá og með 1. apríl n.k. en daglánavextir verða óbreyttir.

Eins og fram kom í ársfjórðungsriti Seðlabankans Peningamálum í febrúar sl. taldi bankinn á þeim tíma að í ljósi aðstæðna væri ekki tilefni til að lækka vexti að sinni. Forsendur gætu hins vegar breyst tiltölulega hratt og þar myndi þróun gengis og verðlags á næstu mánuðum hafa mikið að segja. Gengi krónunnar hefur styrkst um 2,3% frá 21. janúar þegar festar voru forsendur verðbólguspárinnar sem birt var í febrúarbyrjun. Þá benda tvær síðustu verðmælingar til fremur lítillar undirliggjandi verðbólgu það sem af er ári. Það stafar þó að hluta af sérstöku átaki til að halda aftur af verðlagshækkunum sem óvíst er hvaða langtímaáhrif hefur á verðbólgu. Auk þess má búast við að gengislækkun síðustu missera eigi enn eftir að hafa einhver áhrif á verðlagsþróun ef gengi krónunnar styrkist ekki enn frekar. Í ljósi þróunar síðustu vikna verður eigi að síður að telja að líkur hafi vaxið á að verðbólguspá bankans fyrir árið í ár gangi eftir.

Hagvísar Seðlabanka Íslands sem birtir voru seint í síðustu viku staðfesta einnig að spenna á vinnumarkaði hefur hjaðnað nokkuð. Auk þess eru vísbendingar um að áfram dragi úr vexti útlána innlánsstofnana. Þá sýna nýjustu upplýsingar Þjóðhagsstofnunar að góðar horfur eru á að framleiðsluspenna hverfi þegar líður á árið. Þessi þróun var í meginatriðum fyrirséð þegar bankinn kynnti síðustu verðbólguspá sína, en samkvæmt henni voru ekki horfur á að verðbólgumarkmið bankans næðist á árinu 2003. Hækkun gengisins að undanförnu og tiltölulega hagstæð verðlagsþróun síðustu tvo mánuði auka hins vegar að öllu öðru óbreyttu líkurnar á að verðbólgumarkmiðið náist einnig. Seðlabankinn kynnir nýja verðbólguspá í byrjun maí.

Þrátt fyrir 0,5 prósentu vaxtalækkun nú eru raunvextir Seðlabankans enn háir miðað við þá verðbólgu sem spáð er. Aðhaldsstig peningastefnunnar er því áfram mikið. Bankinn telur mikilvægt að svo verði enn um hríð til að tryggja að verðbólgumarkmiðið náist. Í ljósi þess að verðbólga hefur að undanförnu verið langt umfram það sem ásættanlegt er verður peningastefnan að miða fyrst og fremst að því að ná verðbólgu niður.

Í ræðu sinni á ársfundi bankans í dag skýrði formaður bankastjórnar greiningu bankans á þróun, stöðu og horfum í efnahags- og peningamálum sem bankastjórn lagði meðal annars til grundvallar við ákvörðun sína í dag.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísleifur Gunnarsson formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Frétt nr. 10/2002
26. mars 2002

Til baka