logo-for-printing

09. janúar 2002

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok desember 2001 og til samanburðar í lok desember 2000 ásamt breytingum í desember 2001 og frá ársbyrjun 2001.
Þar sem áramótauppgjöri og endurskoðun er ekki lokið eru tölur fyrir desemberlok 2001 bráðabirgðatölur og kunna þær að taka breytingum í endanlegu uppgjöri.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 0,4 milljarða króna í desember og nam 36,6 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 355 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Í mánuðinum seldi Seðlabankinn gjaldeyri utan innlends gjaldeyrismarkaðar fyrir 5 milljarða króna og gerði gjaldmiðlaskiptasamning fyrir 4 milljarða króna. Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 2 milljarða króna í mánuðinum og námu 15 milljörðum króna í lok hans.

Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, styrktist um 4,3% í mánuðinum.

Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 5,1 milljarði króna í desemberlok miðað við markaðsverð. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 2,1 milljarði króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 0,3 milljarða króna í desember og námu 54,1 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu um 3,3 milljarða króna í mánuðinum og voru 22,8 milljarðar króna í lok hans.

Seðlar og mynt í umferð fóru í fyrsta skipti yfir 9 milljarða króna og höfðu þar með vaxið um 0,5 milljarða króna frá síðustu áramótum.

Nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 8,3 milljarða króna í desember og voru neikvæðar um 30,9 milljarða króna í lok mánaðarins, þ.e. nettóinnstæður ríkissjóðs námu 30,9 milljörðum króna.

Grunnfé bankans dróst saman í desember um 4,5 milljarða króna og nam 27,8 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Tafla yfir helstu liði efnahagsreiknings Seðlabanka Íslands

 

Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innlánsstofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka. Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi nettógjaldeyrisstaða Seðlabankans sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi nettókröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar brúttókröfur á aðra en ríkið, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

  
 

Nr. 1/2002
9. janúar 2002
Leiðrétt

 

 

Til baka