logo-for-printing

18. desember 2001

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 32 ma.kr.

 Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 18. desember. Samningstíminn er 15 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.

Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 10,1%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 32 milljarðar króna en á innlausn voru 35,7 milljarðar króna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 27. desember 2001.

Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri peningamálasviðs, í síma 569-9600.

Nr. 51/2001
18. desember 2001

 

 

Pdf-skjal með frétt og stöplariti yfir viðskipti

Til baka