logo-for-printing

13. desember 2001

Breyting á lágmarksfjárhæð greiðslna í stórgreiðslukerfi Seðlabanka Íslands

Í samræmi við lög um öryggi greiðslufyrirmæla í greiðslukerfum nr. 90/1999 og reglur um aðgang að uppgjörsreikningum í Seðlabanka Íslands nr. 951/2000, starfrækir Seðlabanki Íslands stórgreiðslukerfi vegna greiðslufyrirmæla sem nú eru að fjárhæð 100 milljónir króna eða hærri. Fjölgreiðslumiðlun hf. starfrækir fjölgreiðslukerfi vegna greiðslufyrirmæla sem nú eru allt að 100 milljónum króna.

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur í samráði við stjórn Fjölgreiðslumiðlunar hf. ákveðið að lágmarksfjárhæð greiðslufyrirmæla sem afgreidd eru í stórgreiðslukerfi Seðlabankans verði lækkuð úr 100 milljónum króna í 25 milljónir króna.

Fyrirmæli um greiðslu sem eru 25 milljónir króna eða hærri verða því frá þeim degi afgreidd í stórgreiðslukerfi Seðlabankans. Fyrirmæli um greiðslu allt að 25 milljónum króna verða afgreidd í greiðslukerfi Fjölgreiðslumiðlunar hf. Breyting þessi tekur gildi 15. desember 2001.

Ákvörðun þessi er liður í þróun íslenskra greiðslukerfa. Hún mun að svo stöddu ekki hafa áhrif á hvenær hægt er að inna stórgreiðslur af hendi. Í byrjun árs 2002 má vænta ákvarðana um breytingar í þeim efnum. Að öðru leyti er vísað til umfjöllunar um þróun greiðslukerfa og uppgjörskerfa sem birtist í Peningamálum Seðlabanka Íslands, 9. hefti, nóvember 2001. Greinin ber heitið þróun greiðslu- og uppgjörskerfa.

Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Ásgeirsson staðgengill framkvæmdastjóra fjármálasviðs Seðlabanka Íslands í síma 569-9642.

   
 Nr. 43/2001
13. desember 2001

 

 

Til baka