logo-for-printing

13. nóvember 2001

Endurhverf verðbréfakaup fyrir 37,6 ma.kr.

Í samræmi við reglur um viðskipti Seðlabanka Íslands við lánastofnanir fór fram uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum í dag, þriðjudaginn 13. nóvember. Samningstíminn er 14 dagar, en þá hverfa verðbréfin til fyrri eigenda á ný.


Notuð var fastverðsaðferð og bauðst Seðlabankinn til að kaupa verðbréf á ávöxtunarkröfunni 10,1%. Engin fjárhæðarmörk voru í uppboðinu. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 37,6 milljarðar króna en á innlausn voru 32,9 milljarðar króna.  Næsta uppboð er fyrirhugað 20. nóvember 2001.


Línuritið sýnir stöðu samninga um endurhverf viðskipti Seðlabankans á grundvelli reglubundinna uppboða. Auk þeirra á Seðlabankinn viðskipti við ríki og lánastofnanir sem einnig hafa áhrif á lausafjármyndun.

 

Nánari upplýsingar veitir Tómas Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri peninga­málasviðs, í síma 569-9600.

Nr. 46/2001

13. nóvember 2001

 

 

 


 
 


 

 

Til baka