logo-for-printing

20. september 2001

Seðlabankinn birtir hagvísa á vef sínum

Seðlabanki Íslands hefur um alllangt skeið tekið saman safn helstu hagvísa af innlendum og erlendum vettvangi með nánast mánaðarlegu millibili, ásamt stuttu yfirliti um þróun þeirra. Samantektin hefur verið þáttur í þeirri greiningu sem liggur að baki mati bankans á ástandi og horfum í efnahagsmálum. Hagvísarnir hafa til þessa einkum verið nýttir innan bankans. Héðan í frá mun Seðlabankinn hins vegar birta þetta safn hagvísa opinberlega á heimasíðu sinni undir heitinu Hagvísar Seðlabanka Íslands. Septemberútgáfa Hagvísa Seðlabanka Íslands hefur nú verið birt á heimasíðu bankans. Til áramóta munu Hagvísar Seðlabanka Íslands verða birtir á heimasíðu bankans eftir kl. 16 eftirtalda daga:

Fimmtudaginn 25. október

Fimmtudaginn 22. nóvember

Fimmtudaginn 20. desember.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

 

 

Nr. 34/2001

19. september 2001

Til baka