logo-for-printing

22. júní 2001

Umbætur gjaldeyrismarkaði og erlent lán

Umbætur á innlendum gjaldeyrismarkaði og erlent lán ríkissjóðs til eflingar erlendri stöðu Seðlabankans

Umbætur á innlendum gjaldeyrismarkaði
Á fundi í dag urðu bankastjórn Seðlabanka Íslands og forsvarsmenn viðskiptavaka á gjaldeyrismarkaði sammála um að gera breytingu á innlendum gjaldeyrismarkaði sem taka mun gildi 1. júlí n.k. Viðskiptavakarnir eru Íslandsbanki hf., Landsbanki Íslands hf., Búnaðarbanki Íslands hf. og Kaupþing hf. Breytingin felur í sér að Seðlabankinn mun til loka þessa árs greiða viðskiptavökunum umbun eftir vissum reglum fyrir að sinna hlutverki sínu en á þeim hvíla ríkar skyldur.

Breytingin er gerð í framhaldi af vinnu starfshóps sem settur var á laggirnar fyrir skömmu. Í honum sátu fulltrúar viðskiptavaka á innlendum gjaldeyrismarkaði undir forystu Seðlabanka Íslands. Hópnum var ætlað að setja fram tillögur um umbætur á gjaldeyrismarkaði sem hefðu það að markmiði að auka dýpt hans, gera viðskiptavakahlutverkið aðlaðandi, draga úr sveiflum, koma í veg fyrir óþarfa spíralmyndun og stuðla að hagkvæmum viðskiptakostnaði. Starfshópurinn skilaði tillögum fyrir fáeinum dögum. Breytingin sem gerð verður nú er í samræmi við eina tillagna hópsins. Viðskiptavakarnir telja hana afar mikilvæga og til þess að fallna að stuðla að markmiðunum sem lýst er að framan.

Áfram verður unnið að útfærslu annarra tillagna hópsins.


Erlend staða Seðlabanka Íslands efld
Eins og lýst er í frétt sem fjármálaráðuneytið gaf út í dag hefur verið ákveðið að ríkissjóður taki erlent lán að fjárhæð 25 milljarðar króna. Andvirði þess verður varið til að efla erlenda stöðu Seðlabankans. Í frétt ráðuneytisins kemur fram að stefnt sé að því að hluti af andvirði hins nýja láns verði eiginfjárframlag til bankans í ljósi nýrra laga um Seðlabanka Íslands sem gera ráð fyrir eflingu eiginfjárstöðu hans. Þessi aðgerð styrkir erlenda stöðu bankans til mikilla muna.


Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísleifur Gunnarsson formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Til baka