logo-for-printing

06. desember 2000

Helstu liðir efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok nóvember 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í nóvember og frá ársbyrjun. 
 Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 0,3 milljarða króna í nóvember og nam 34,8 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 399 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 1,3%. Seðlabankinn seldi gjaldeyri á millibankamarkaði fyrir 4,7 milljarða króna.
Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 4,5 milljarða króna í mánuðinum og námu þau 15,4 milljörðum í nóvember lok.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 7,1 milljarði króna í nóvember lok miðað við markaðsverð, jukust um 0,5 milljarða króna í mánuðinum. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 4,3 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir drógust saman um 2,6 milljarða króna í  nóvember og námu 28,6 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust í mánuðinum um 2,3 milljarða króna og voru 12,2 milljarðar króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 2,8 milljarða króna í nóvember og voru neikvæðar um 8,6 milljarða króna í lok mánaðarins.  Þar með hafa nettókröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkað um 3 milljarða króna frá áramótum.
Grunnfé bankans dróst saman um 2,7 milljarða króna í mánuðinum og nam 25,5 milljörðum króna í lok hans.
 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Tafla yfir helstu liði efnahagsreiknings Seðlabanka Íslands

Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innláns-stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi gjaldeyrisstaða Seðlabankans nettó sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi kröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir nettó, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar kröfur á aðra en ríkið brúttó, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

 

Nr. 28/2000
6. desember 2000

 

 

 

Til baka