logo-for-printing

27. nóvember 2000

Minnispeningur vegna landafunda Leifs Eiríkssonar

Á næstunni hefst hér á landi sala á minnispeningi sem Seðlabanki Íslands gefur út í tilefni þess að þúsund ár eru liðin frá fundi Leifs Eiríkssonar á Norður Ameríku. Sölu minnispeningsins annast Myntsala Íslandspósts. Minnispeningurinn var sleginn hjá bandarísku myntsláttunni, U.S. Mint, og hefur hún séð um sölu hans á erlendum markaði. Minnispeningurinn er úr silfri að 9/10 hlutum, 26,73 grömm að þyngd og 38,1 mm í þvermál. Hann er löglegur gjaldmiðill að verðgildi 1000 krónur í sérunninni gljásláttu og er hámarksslátta 150.000 eintök. Söluverð hans er 4200 krónur.

Á annarri hlið peningsins er mynd af styttu Leifs Eiríkssonar á Skólavörðuhæð, sem bandaríska þingið gaf íslensku þjóðinni í tilefni 1000 ára afmælis Alþingis 1930, og á hinni stílfærð mynd af landvættunum eins og þær birtast á gildandi mynt. Peninginn teiknaði Þröstur Magnússon teiknari FIT.

Sala á minnispeningnum hófst í Bandaríkjunum í lok júní sl. en hann var gefinn út í samvinnu við bandarísku myntsláttuna sem gaf samhliða út silfurpening af sama tilefni. Sala minnispeninganna hefur gengið mjög vel og hafa þegar selst rúmlega 95 þúsund eintök af íslenska peningnum og tæplega 160 þúsund eintök af þeim bandaríska.

Hagnaður af sölu beggja peninganna rennur í sérstakan sjóð sem kenndur er við Leif Eiríksson. Hann mun styrkja íslenska námsmenn til náms í Bandaríkjunum og bandaríska til náms á Íslandi. Í stjórn sjóðsins, sem varðveittur verður hjá háskólanum í Virginíu, eru fimm fulltrúar, tveir skipaðir af rektor háskólans í Virginíu, einn skipaður af forsætisráðherra og einn af bankastjórn Seðlabanka Íslands. Oddamaður verður skipaður til tveggja ára í senn og verður til skiptis frá Bandaríkjunum og Íslandi.

Nánari upplýsingar veitir Ingvar A. Sigfússon rekstrarstjóri í síma 569 9600.

Nr. 27/2000
27. nóvember 2000

 

 

Til baka