logo-for-printing

06. nóvember 2000

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok október 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í október og frá ársbyrjun. 
 Gjaldeyrisforði Seðlabankans stóð því sem næst í stað í október og nam 35,1 milljarði króna í lok mánaðarins (jafnvirði 404 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok).  Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 2,3%.
Erlend skammtímalán bankans lækkuðu um 3,8 milljarða króna í mánuðinum og námu þau 10,9 milljörðum króna í októberlok.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 6,6 milljörðum króna í október lok miðað við markaðsverð, lækkuðu um 0,2 milljarða króna í mánuðinum. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs í eigu bankans námu 3,8 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust um 2,6 milljarða króna í október og námu 31,2 milljörðum króna í lok mánaðarins.  Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust einnig í mánuðinum um 0,7 milljarða króna og námu 9,9 milljörðum króna í lok hans.
Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana í bankanum hækkuðu um 6,5 milljarða króna í október og námu 11,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (nettókröfur bankans voru neikvæðar um þá fjárhæð).
Grunnfé bankans jókst um 0,3 milljarða króna í mánuðinum og nam 28,2 milljörðum króna í lok hans.
 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Tafla yfir helstu liðir í efnahagi Seðlabanka Íslands

Skýringar:
Gjaldeyrisforði sýnir brúttóeign Seðlabankans í erlendum gjaldeyri. Markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs sýna eign bankans í spariskírteinum ríkissjóðs, ríkisbréfum og ríkisvíxlum. Markaðsskráð verðbréf annarra eru húsbréf og húsnæðisbréf. Kröfur á innlánsstofnanir eru brúttókröfur bankans á innláns-stofnanir. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir eru brúttókröfur bankans á þessar stofnanir. Erlendar skuldir til skamms tíma sýna skammtímalán sem Seðlabankinn tekur við og við, m.a. í því skyni að styrkja gjaldeyrisforðann. Seðlar og mynt sýna heildarfjárhæð seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka.  Almennar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður þeirra á viðskiptareikningum í Seðlabankanum og bundnar innstæður innlánsstofnana og annarra fjármálastofnana eru innstæður sem þeim er skylt að eiga í Seðlabankanum í samræmi við bindiskyldu sem bankinn ákveður. Neðanmáls eru sýndir fjórir liðir til skýringar, í fyrsta lagi gjaldeyrisstaða Seðlabankans, nettó, sem sýnir erlendar eignir til skamms tíma að frádregnum erlendum skuldum til skamms tíma, í öðru lagi kröfur Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir, nettó, þ.e. skuldir þessara aðila við Seðlabankann að frádregnum innstæðum þeirra í bankanum, í þriðja lagi innlendar kröfur á aðra en ríkið brúttó, og í fjórða lagi grunnfé bankans en til þess teljast seðlar og mynt í umferð og innstæður innlánsstofnana í Seðlabankanum.

Nr. 26/2000
6. nóvember 2000

 

 

 

Til baka