logo-for-printing

07. júní 2000

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok maí 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í maí og frá ársbyrjun. 
 Gjaldeyrisforði Seðlabankans stóð því sem næst í stað í maí og nam 32,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 428 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 0,8%.
Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 1,1 milljarð króna í mánuðinum og námu þau 9,5 milljörðum króna í maílok. 
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 10 milljörðum króna í maílok miðað við markaðsverð og hækkaði um 1,3 milljarða króna í mánuðinum.  Þar af eru markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 7,2 milljarðar króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 4,2 milljarða króna í maí og námu þær 26,6 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu einnig um 2,6 milljarða króna í mánuðinum og voru 5,3 milljarðar króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 7 milljarða króna í maí og voru þær neikvæðar um 2,8 milljarða króna í lok mánaðarins.  Þar með hafa nettókröfur á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkað um 8,7 milljarða króna frá áramótum.
Grunnfé bankans hækkaði um 1,8 milljarða króna í mánuðinum og nam 28,8 milljörðum króna í lok hans.
 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í milljónum króna

Nr. 13/2000
7. júní 2000

 

 

Til baka