logo-for-printing

05. maí 2000

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok apríl 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í apríl og frá ársbyrjun. 
 Gjaldeyrisforði Seðlabankans breyttist nánast ekkert í apríl og nam 32,3 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 429 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, styrktist í mánuðinum um 0,75%.
Erlend skammtímalán bankans voru nánast óbreytt í mánuðinum og námu 8,4 milljörðum króna í apríllok.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 8,7 milljörðum króna í apríllok miðað við markaðsverð og hækkaði um 0,5 milljarða króna í mánuðinum. Þar af eru markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 5,8 milljarðar króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 1,4 milljarða króna í apríl og námu 30,7 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu einnig um 1,8 milljarða króna í mánuðinum og voru 7,9 milljarðar króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 2,5 milljarða króna í apríl og voru neikvæðar um 9,9 milljarða króna í lok mánaðarins. Þar með höfðu nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkað um 1,6 milljarða króna frá áramótum.
Grunnfé bankans hækkaði lítillega í mánuðinum og nam 27 milljörðum króna í lok hans.
 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í milljónum króna

Nr. 12/2000
5. maí 2000

Til baka