logo-for-printing

06. apríl 2000

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok mars 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í mars og frá ársbyrjun. 
 Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst lítillega í mars og nam 32,4 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 441 milljónar bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, stóð nokkurn veginn í stað í mánuðinum.
Erlend skammtímalán bankans námu 8,4 milljörðum króna í mánaðarlok og höfðu lækkað um 1,2 milljarða í mánuðinum. 
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 8,2 milljörðum króna í marslok miðað við markaðsverð og breyttist ekki í mánuðinum. Þar af voru markaðsskráð verðbréf ríkissjóðs 5,1 milljarður króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 1,2 milljarða króna í mars og námu 29,3 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu aftur á móti um 0,6 milljarða króna í mánuðinum og voru 6,1 milljarður króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 1,5 milljarða króna í mars og voru neikvæðar um 7,3 milljarða króna í lok mánaðarins. Þar með höfðu nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkað um 4,2 milljarða króna frá áramótum.
Grunnfé bankans jókst um 1,7 milljarða króna í mánuðinum og nam 26,9 milljörðum króna í lok hans.
 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Nr. 11/2000
6. apríl 2000

Til baka