logo-for-printing

07. mars 2000

Tryggvi Pálsson ráðinn til Seðlabanka Íslands

Líkt og aðrir seðlabankar hefur Seðlabanki Íslands að undanförnu lagt vaxandi áherslu á að fylgjast með þáttum sem varða heilbrigði fjármálakerfisins. Um þessi viðfangsefni var m.a. fjallað í ársskýrslu bankans fyrir árið 1998 og í ítarlegri grein í ársfjórðungsriti bankans, Peningamálum, í febrúar sl. Í því skyni að efla enn frekar getu Seðlabankans til þess að takast á við þessi viðfangsefni hefur bankastjórn ákveðið að fá Tryggva Pálsson til starfa sem ráðgjafa bankastjórnar frá 1. apríl 2000. Viðfangsefni hans munu tengjast þáttum sem varða athuganir bankans á heilbrigði fjármálakerfisins og fjármálastöðugleika.

Tryggvi Pálsson er hagfræðingur að mennt. Hann lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1974 og M.Sc. prófi í þjóðhagfræði frá London School of Economics and Political Science 1975. Auk þess stundaði hann framhaldsnám í Queen Mary College við London University 1975 til 1976. Tryggvi starfaði í Landsbanka Íslands frá 1976 til 1988, sem forstöðumaður áætlanadeildar og síðar framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Hann var bankastjóri Verslunarbanka Íslands hf. frá 1988 til 1989, bankastjóri Íslandsbanka hf. frá stofnun 1990 og framkvæmdastjóri þar frá 1993. Tryggvi hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa. Hann hefur m.a. setið í stjórnum Sambands íslenskra viðskiptabanka, Verslunarráðs og Fjárfestingarfélags Íslands hf. og verið formaður stjórna Kreditkorts hf., Glitnis hf. og Verðbréfaþings Íslands hf.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísl. Gunnarsson formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Nr. 9/2000
7. mars 2000

 

Til baka