logo-for-printing

06. mars 2000

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok febrúar 2000 og til samanburðar í lok desember 1999 ásamt breytingum í febrúar og frá ársbyrjun. 
 
Gjaldeyrisforði Seðlabankans stóð í stað í febrúar og nam 32,2 milljörðum króna í lok mánaðarins (jafnvirði 441 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði um 1,3 % í febrúar.

Erlend skammtímalán bankans námu 9,6 milljörðum króna í febrúar og höfðu hækkað um 4,7 milljarða króna í mánuðinum, einkum vegna greiðslu afborgana og vaxta af erlendum lánum ríkissjóðs.

Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 8,1 milljarði króna í febrúarlok miðað við markaðsverð og breyttist ekki í mánuðinum.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 1,9 milljarða króna í mánuðinum og námu 30,5 milljörðum króna í lok hans. Kröfur á aðrar fjármála-stofnanir lækkuðu um 1,2 milljarða króna í mánuðinum og voru 5,5 milljarðar króna í lok hans.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana í bankanum lækkuðu um 12,1 milljarð króna í febrúar og námu um 8,9 milljörðum króna í lok mánaðarins.

Grunnfé bankans hækkaði um 4,2 milljarða króna í mánuðinum og nam 25,2 milljörðum króna í lok hans.
 
Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Nr. 8/2000
6. mars 2000

 

Til baka