logo-for-printing

20. desember 1999

Óbreyttar heimildir til verðtryggingar sparifjár og lánsfjár

Í júní 1995 setti Seðlabanki Íslands reglur um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár. Þær kváðu m.a. á um að lágmarkstími verðtryggðra innlána og útlána yrði smám saman lengdur. Í ársbyrjun 2000 yrði verðtrygging innlána bönnuð og lágmarksbinditími verðtryggðra lána 7 ár. Í október 1998 lagði nefnd sem viðskiptaráðherra skipaði til að ekki yrðu settar frekari takmarkanir á notkun verðtryggingar en þá höfðu þegar komið til framkvæmda. Gildandi takmörkunum skyldi þó viðhaldið enn um sinn. Í þessu fælist að sá áfangi sem gert var ráð fyrir að tæki gildi í byrjun ársins 2000 kæmi ekki til framkvæmda.

Seðlabanki Íslands lagði til við viðskiptaráðherra að farið yrði að tillögum nefndarinnar og var það samþykkt. Seðlabankinn hefur því gefið reglurnar út að nýju. Í þeim eru staðfestar takmarkanirnar sem gilt hafa á verðtryggingu sparifjár og lánsfjár frá byrjun árs 1998, þ.e. að lágmarksbinditími verðtryggðra innlána sé þrjú ár og að lágmarkslánstími verðtryggðra útlána sé 5 ár.

Í samræmi við ákvæði laga kveða reglurnar einnig á um jöfnuð verðtryggðra eigna og skulda lánastofnana. Þeim hluta reglnanna var lítillega breytt, m.a. var leyfilegur 'ójöfnuður' hverrar stofnunar aukinn úr 20 í 30% af eigin fé.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Nr. 82/1999
20. desember 1999

 

Til baka