logo-for-printing

24. nóvember 1999

Nýtt ársfjórðungsrit Seðlabanka Íslands-haustskýrsla 1999

Á hverju hausti frá 1987 hefur Seðlabanki Íslands birt mat sitt á stöðu og horfum í efnahags- og peningamálum. Undanfarin ár hefur greinargerð bankans gengið undir nafninu Haustskýrsla Seðlabanka Íslands. Eins og þegar hefur verið greint frá hafa að undanförnu staðið yfir breytingar á útgáfum Seðlabanka Íslands. Útgáfu Hagtalna mánaðarins og Economic Statistics hefur verið hætt og í staðinn hafin útgáfa annars vegar á Hagtölum Seðlabankans og hins vegar á ársfjórðungsritinu Peningamál sem einnig verður gefið út á ensku undir heitinu Quarterly Monetary Bulletin.

Í Hagtölum Seðlabankans eru eingöngu birtar talnalegar upplýsingar og er þeim einkum miðlað um heimasíðu bankans á veraldarvefnum (www.sedlabanki.is). Þær eru endurnýjaðar á hverjum mánudegi eftir því sem tilefni gefst til.

Í Peningamálum verður auk talnalegra upplýsinga rými fyrir enn ítarlegri umfjöllun um ýmsa þætti efnahags- og peningamála en var í Hagtölum mánaðarins.

Fyrsta tölublað Peningamála er að koma út og verður birt á heimasíðu bankans síðdegis í dag. Í þessu fyrsta tölublaði birtist mat bankans á stöðu og horfum í efnahags- og peningamálum um þessar mundir og því leysir það af hólmi haustskýrslu undanfarinna ára. Í ritinu eru kaflar um þróun og horfur í efnahags- og peningamálum og um fjármálamarkaði og aðgerðir Seðlabankans. Í inngangi skýrslunnar er megin boðskapur bankans dreginn saman í stuttu máli.

Auk framangreindra kafla er birt í ritinu erindi Birgis Ísl. Gunnarssonar formanns bankastjórnar Seðlabanka Íslands á aðalfundi Sambands íslenskra sparisjóða 8. október sl. og grein Jóns Steinssonar um Evrukerfið. Í erindi sínu fjallaði Birgir Ísleifur m.a. um stefnu Seðlabankans, lausafjárreglur, útlánaþróun og leikreglur á innlendum fjármálamarkaði.

Þess má geta að Birgir Ísl. Gunnarsson mun kynna mat bankans sem birtist í ritinu á morgunverðarfundi Verslunarráðs Íslands á morgun, fimmtudaginn 25. nóvember.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Nr. 75/1999
24. nóvember 1999

 

Til baka