logo-for-printing

04. nóvember 1999

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok október 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamt breytingum í október og frá ársbyrjun.
 Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 0,6 milljarða króna í október og nam í lok mánaðarins 34,1 milljarði króna (jafnvirði 479 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Frá ársbyrjun hafði forðinn styrkst um 4,4 milljarða króna. Í september sl. styrktist gjaldeyrisforðinn vegna tímabundinna erlendra lánahreyfinga ríkissjóðs og gætti áhrifa þess í stöðu forðans í lok mánaðarins (sbr. frétt bankans nr. 64/1999). Svipaðra áhrifa gætti í lok október.
Seðlabankinn átti engin viðskipti á innlendum millibankamarkaði með gjaldeyri í október. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði um 1,6% í mánuðinum.
Erlend skammtímalán bankans hækkuðu um 1,1 milljarð króna í október en lækkuðu um 2,7 milljarða frá áramótum til loka október. Í lok október námu erlend langtímalán bankans 1,1 milljarði króna og höfðu lækkað um 4 milljarða króna frá ársbyrjun.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 8,3 milljörðum króna í októberlok miðað við markaðsverð og lækkaði um 0,5 milljarða króna í mánuðinum. Lækkunin fólst öll í sölu og innlausn ríkisvíxla. Í lok mánaðarins nam ríkisvíxlaeign bankans 1,9 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir jukust um 2,2 milljarða króna í október og námu 18,1 milljarði króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu um 2,8 milljarða króna í mánuðinum og voru 5,7 milljarðar króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 2,4 milljarða króna í október og voru neikvæðar um 9,7 milljarða króna í lok mánaðarins. 
Grunnfé bankans dróst saman um 0,2 milljarða króna í mánuðinum og nam 23,1 milljörðum króna í lok hans.
 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Nr. 71/1999
4. nóvember 1999

 

Til baka