logo-for-printing

09. september 1999

Greiðslujöfnuður við útlönd janúar-júní 1999

Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands varð 19,6 milljarða króna viðskiptahalli við útlönd á fyrri helmingi ársins samanborið við 21,2 milljarða króna halla á sama tíma í fyrra. Innstreymi fjár mældist 16,5 milljarðar króna á fyrri árshelmingi 1999 og skýrist það af erlendum lántökum og skuldabréfaútgáfu lánastofnana og atvinnufyrirtækja í útlöndum. Útstreymi fjár vegna erlendra verðbréfakaupa nam 18,3 milljörðum króna og innlánsstofnanir juku erlendar eignir sínar, aðrar en verðbréf, umtalsvert á fyrri hluta ársins. Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst á sama tíma um 0,7 milljarða króna og nam 31,1 milljarði króna í lok júní 1999.

Kaup og sala flugvéla og skipa valda iðulega miklum sveiflum í utanríkisviðskiptum. Á fyrri helmingi ársins nam innflutningur skipa og flugvéla 2,7 milljörðum króna umfram útflutning þeirra samanborið við 5,7 milljarða króna í fyrra. Í heild jókst útflutningur vöru og þjónustu um 7,8% á fyrri hluta ársins frá sama tíma í fyrra en innflutningur um 3,6%. Samtals var hallinn á vöru- og þjónustuviðskiptum rúmlega 3 milljörðum króna minni á fyrri hluta ársins en á sama tímabili í fyrra, en hallinn á þáttatekjum og rekstrarframlögum nettó var um 1,7 milljarða króna meiri. (Þáttatekjur eru laun, vextir og arðgreiðslur, en rekstrarframlög eru t.d. opinber framlög til alþjóðastofnana, gjafir, styrkir, skaðabætur og skattar lögaðila.)

Taflan að neðan sýnir samandregið ársfjórðungslegt yfirlit um greiðslujöfnuðinn við útlönd. Á meðfylgjandi yfirlitum eru ítarlegri upplýsingar um greiðslujöfnuðinn og erlenda stöðu þjóðarbúsins.

Greiðslujöfnuður við útlönd í milljörðum króna

Greiðslujöfnuður við útlönd

Erlend staða þjóðarbúsins

Nr. 56/1999
9. september 1999

Til baka