logo-for-printing

06. september 1999

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok ágúst 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamt breytingum í ágúst og frá ársbyrjun.
 Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 1,8 milljarða króna í ágúst og nam í lok mánaðarins 31,6 milljörðum króna (jafnvirði 434 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Frá ársbyrjun hafði forðinn styrkst um 1,8 milljarða króna. Seðlabankinn átti engin viðskipti á innlendum millibankamarkaði með gjaldeyri í ágúst. Rýrnun gjaldeyrisforðans í mánuðinum skýrist af endurgreiðslu erlends langtímaláns bankans. Erlend skammtímalán bankans jukust, en nokkru minna en sem nam endurgreiðslu langtímalánsins. Í lok ágúst námu erlend langtímalán bankans 1,3 milljörðum króna og höfðu lækkað um 3,8 milljarða króna frá ársbyrjun. Erlend skammtímalán bankans námu 2,5 milljörðum króna og höfðu lækkað um 1,4 milljarða króna frá ársbyrjun. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði um 0,6% í mánuðinum.
Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 10,2 milljörðum króna í ágústlok miðað við markaðsverð og lækkaði um 1,4 milljarða króna í mánuðinum. Breytingin fólst öll í sölu og innlausn ríkisvíxla, en í lok mánaðarins nam ríkisvíxlaeign bankans 3,9 milljörðum króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 2,6 milljarða í ágúst og námu þær 17,6 milljörðum í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir hækkuðu einnig um 2,6 milljarða króna í mánuðinum, einkum vegna endurhverfra viðskipta, og voru 7,9 milljarðar króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 4,9 milljarða króna í ágúst og voru þær neikvæðar um 6,9 milljarða króna í lok mánaðarins. 
Grunnfé bankans dróst saman um 3 milljarða króna í mánuðinum og nam það 23,8 milljörðum króna í lok hans.
 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans í milljónum króna

Nr. 54/1999
6. september 1999

 

Til baka