logo-for-printing

08. apríl 1999

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok mars 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamt breytingum í mánuðinum.
 Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 3,4 milljarða króna í mars og nam í lok mánaðarins 32,6 milljörðum króna (jafnvirði 450 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). 
Erlendar skammtímaskuldir bankans námu 0,1 milljarði króna í lok mars og höfðu lækkað um 3,8 milljarða króna í mánuðinum.
 Á millibankamarkaði með gjaldeyri voru bókfærð gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans í mars jákvæð um 7,2 milljarða króna. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, hækkaði í mánuðinum um 0,2%.
 Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum nam 9,6 milljörðum króna í marslok miðað við markaðsverð og jókst um 0,5 milljarða króna í mánuðinum.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir breyttust afar lítið og námu þær 12,5 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir drógust saman um 2,2 milljarða króna og námu 4,8 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 3,2 milljarða króna og voru jákvæðar um 2 milljarða króna í lok mars. 
Grunnfé bankans jókst um 9,9 milljarða króna í mánuðinum og nam 29 milljörðum króna í lok hans.
 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Nr. 22/1999
8. apríl 1999

Til baka