logo-for-printing

08. mars 1999

Greiðslujöfnuður við útlönd 1998

Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands var viðskiptahallinn 33,5 milljarðar króna á árinu 1998 samanborið við 7,6 milljarða króna halla árið áður. Í síðustu opinberu þjóðhagsspá var gert ráð fyrir 35 milljarða króna halla. Minni viðskiptahalli en spáð var skýrist að öllu leyti af hagstæðari jöfnuði þáttatekna (þ.e. vexta, arðs og launa) vegna meiri metinnar ávöxtunar af erlendri verðbréfaeign þjóðarinnar en áður. Vöru- og þjónustuviðskipti urðu 1,5 milljarði króna óhagstæðari en spáð hafði verið. Á árinu 1998 var mikið fjármagnsinnstreymi vegna erlendra lána lánastofnana og atvinnufyrirtækja. Í heild var fjármagnsjöfnuður við útlönd jákvæður um 37,8 milljarða króna þrátt fyrir umtalsvert fjárútstreymi vegna endurgreiðslu á erlendum skuldum ríkissjóðs og fjárfestinga í erlendum verðbréfum. Jöfnuður ríkti í beinum fjárfestingum Íslendinga erlendis og erlendra aðila hér á landi, um 7 milljarðar króna hvort um sig. Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 2,3 milljarða króna og nam um 30 milljörðum króna í árslok.

Á síðasta fjórðungi ársins var 3,3 milljarða króna halli á viðskiptum við útlönd sem var nokkru minna en á síðasta fjórðungi ársins 1997. Fjármagnsinnstreymi mældist um 14 milljarðar króna og var skekkjuliður greiðslujafnaðar því stór og neikvæður um 10 milljarða króna. Að hluta til jafnast þessi skekkja út yfir árið en þó hefur ekki tekist með reglulegri gagnaöflun að skýra rúmlega 4 milljarða króna fjárstreymi úr landi á hvoru áranna 1997 og 1998.

 Taflan sýnir samandregið yfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd. Ítarlegar upplýsingar um greiðslujöfnuðinn verða birtar í næsta tölublaði Hagtalna mánaðarins.

Greiðslujöfnuður við útlönd

Nr. 16/1999
8. mars 1999

 

Til baka