logo-for-printing

04. mars 1999

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok febrúar 1999 og til samanburðar í lok desember 1998 ásamt breytingum í mánuðinum og frá áramótum.
 Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 0,6 milljarða króna í febrúar og nam í lok mánaðarins 29,3 milljörðum króna (jafnvirði 407 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlendar skammtímaskuldir bankans námu tæpum 4 milljörðum króna í lok febrúar og höfðu hækkað um 1,4 milljarða króna í mánuðinum.
 Á millibankamarkaði með gjaldeyri voru bókfærð gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans í febrúar jákvæð um 1,5 milljarða króna. Gengi íslensku krónunnar, mælt með vísitölu gengisskráningar, lækkaði í mánuðinum um 0,6%.
 Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum jókst lítillega í mánuðinum og nam 9,1 milljarði króna í febrúarlok miðað við markaðsverð.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir lækkuðu um 5,5 milljarða króna í febrúar og námu 12,5 milljörðum í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir jukust um tæpan 1 milljarð króna í mánuðinum og námu 7 milljörðum króna í lok hans.
Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir hækkuðu um 3,8 milljarða króna og voru neikvæðar um 1,2 milljarða króna í lok febrúar, sem þýðir að innstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana í bankanum námu hærri fjárhæð en kröfur hans á móti. 
Grunnfé bankans minnkaði um 1,8 milljarða króna í mánuðinum og nam 19,1 milljarði króna í lok hans.
 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Nr. 15/1999
4. mars 1999

Til baka