logo-for-printing

23. febrúar 1999

Seðlabanki Íslands hækkar vexti og leggur lausafjárkvöð á lánastofnanir

Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti í viðskiptum bankans við lánastofnanir. Ávöxtun í endurhverfum viðskiptum verður hækkuð um 0,4% á næsta uppboði, ávöxtun daglána hækkar þegar í stað um 0,4% og vextir af innstæðum lánastofnana í Seðlabankanum um 0,4%. Þá hyggst bankastjórn Seðlabankans leggja lausafjárkvöð á lánastofnanir og verða reglur um hana staðfestar á næstu dögum. Þessar aðgerðir hafa þann tilgang að hamla gegn miklum vexti innlendrar eftirspurnar, styrkja gjaldeyrisforða, draga úr útlánaaukningu og draga úr áhættu tengdri fjármögnun bankakerfisins.

Innlend eftirspurn hefur vaxið hratt að undanförnu og endurspeglast m.a. í miklum innflutningi. Við þau skilyrði sem nú ríkja í þjóðarbúskapnum, sem einkennast af hárri nýtingu framleiðslugetu og litlu atvinnuleysi, gæti áframhaldandi mikill eftirspurnarvöxtur raskað þeim verðstöðugleika sem hér hefur ríkt að undanförnu. Vöxtur peningastærða og útlána gefur vísbendingu um undirliggjandi vöxt eftirspurnar en kyndir um leið undir honum. Í desember spáði Þjóðhagsstofnun því að draga myndi úr vexti eftirspurnar á þessu ári. Enn sem komið er bendir fátt til þess að hann sé tekinn að hjaðna í þeim mæli sem spáin gerði ráð fyrir og útlán vaxa enn hratt. Því telur bankastjórn Seðlabankans óhjákvæmilegt að auka enn aðhald í peningamálum með aðgerðum sem m.a. gætu dregið úr útlánagetu lánastofnana, a.m.k. um hríð.

Lausafjárreglurnar hafa verið undirbúnar um nokkurt skeið og eru þær fyrst og fremst hugsaðar sem varúðaraðgerð, þ.e. að tryggja að lánastofnanir eigi jafnan laust fé yfir tilgreindu lágmarki til þess að vera vel færar um að mæta skuldbindingum sínum. Hliðstæðar reglur gilda meðal ýmissa annarra þjóða. Enda þótt reglurnar séu öðru fremur varúðarreglur munu þær í byrjun hemja útlánagetu stofnana sem þær munu ná til. Þær munu einnig hvetja lánastofnanir til að draga úr fjármögnun útlána með erlendu lánsfé til skamms tíma, en það getur verið áhættusamt fyrir þær eins og vikið var að í haustskýrslu bankans sem gefin var út í nóvember 1998.

Í haustskýrslu bankans var sérstaklega vikið að útlánaþróun lánastofnana. Bankastjórn Seðlabankans telur enn ríka ástæðu til þess að brýna varfærna útlánastefnu fyrir lánastofnunum og ráðdeild og varkárni í lántökum fyrir fyrirtækjum en þó sérstaklega heimilum landsins. Lánsfjármögnun einkaneyslu í þeim mæli sem verið hefur að undanförnu gengur tæpast til lengdar.

Nánari upplýsingar veitir Birgir Ísl. Gunnarsson formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

12/1999
23. febrúar 1999

Til baka