logo-for-printing

13. janúar 1999

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands

Meðfylgjandi eru upplýsingar úr efnahagsreikningi Seðlabanka Íslands í lok desember 1998 og til samanburðar í lok desember 1997 ásamt breytingum í mánuðinum og frá áramótum. Þar sem áramótauppgjöri og endurskoðun er ekki lokið eru tölur fyrir desemberlok 1998 bráðabirgðatölur og kunna þær að taka breytingum í endanlegu uppgjöri.

 Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 0,6 milljarða króna í desember og nam í lok mánaðarins 29,6 milljörðum króna (jafnvirði 427 milljóna bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok). Erlendar skammtímaskuldir bankans lækkuðu lítillega í desember.

Á gjaldeyrismarkaði voru bókfærð gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans jákvæð um 1,1 milljarða króna í desember, en bankinn átti gjaldeyrisviðskipti á innlendum markaði fyrir 2,8 milljarða króna í mánuðinum. Gengi íslensku krónunnar mælt með vísitölu gengisskráningar hækkaði um 0,4% í desember og um 0,7% frá ársbyrjun til loka desember.

 Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum minnkaði í desember um 2,8 milljarða króna miðað við markaðsverð og nam í mánaðarlok 7,9 milljörðum króna. Ríkisvíxlaeignin minnkaði um 1,8 milljarða króna og ríkisbréfaeignin minnkaði um 1 milljarð króna. Spariskírteinaeignin breyttist hins vegar nær ekkert. Á árinu í heild minnkaði eign bankans í markaðsskráðum verðbréfum um 7,9 milljarða króna.

Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 6 milljarða króna í desember en innstæður þeirra í bankanum lækkuðu um 3 milljarða króna. Kröfur Seðlabankans á aðrar fjármálastofnanir drógust saman um 1,3 milljarða króna, en innstæður þeirra í bankanum jukust aftur á móti um 1,2 milljarða króna í mánuðinum.

Nettókröfur bankans á ríkissjóð og ríkisstofnanir lækkuðu um 6,8 milljarða króna í mánuðinum og voru neikvæðar um 8,2 milljarða króna í lok ársins sem þýðir að innstæður ríkisins í bankanum námu hærri fjárhæð en brúttókröfur hans á ríkið.

Grunnfé bankans lækkaði um 2,7 milljarða króna í mánuðinum, en jókst á árinu um 0,9 milljarða króna og nam 20,6 milljörðum króna í árslok.

 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabankans og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Helstu liðir í efnahagsreikningi Seðlabankans

Nr. 3/1999
13. janúar 1999

Til baka