logo-for-printing

29. desember 1998

Efnahags-og myntbandalag Evrópu

Hinn 1. janúar 1999 verður Efnahags- og myntbandalag Evrópu formlega stofnað. Gengi gjaldmiðla myntbandalagslandanna verður þá læst innbyrðis, gjaldmiðill bandalagsins, evra, verður til og Seðlabanki Evrópu í Frankfurt tekur formlega við stjórn peningamála í myntbandalagslöndunum. Sem kunnugt er hefst útgáfa á seðlum og mynt í evrum þó ekki fyrr en árið 2002 þannig að gildandi seðlar og mynt myntbandalagslandanna verða í umferð enn um sinn.

Engar breytingar verða á peningamálastefnu Seðlabanka Íslands um áramótin og gengisstefna stjórnvalda verður óbreytt. Formleg stofnun myntbandalagsins krefst aðeins minni háttar tæknilegra breytinga hjá Seðlabanka Íslands að sinni. Á gengisskráningaryfirliti Seðlabankans verða ekki gerðar aðrar breytingar en að evra kemur í stað eku. Gengi gjaldmiðla myntbandalagslandanna verður áfram sýnt á yfirlitinu en innbyrðis afstöður þeirra munu að sjálfsögðu ekki breytast frá áramótum. Gengisvog Seðlabankans er sem kunnugt er endurskoðuð einu sinni á ári með hliðsjón af utanríkisviðskiptum liðins almanaksárs. Síðast var vogin endurskoðuð á miðju þessu ári og næsta endurskoðun fer væntanlega fram í júní n.k. Engar breytingar verða gerðar á voginni nú um áramótin en í næstu endurskoðun mun evra væntanlega koma í stað gjaldmiðla myntbandalagslandanna.

Eins og áður hefur komið fram hefur Seðlabanki Íslands átt töluverð samskipti við Seðlabanka Evrópu og áður við forvera hans, Peningastofnun Evrópu. Rækt verður lögð við að viðhalda nánum tengslum við bankann.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands í síma 569-9600.

Nr. 76/1998
29. desember 1998

Til baka