logo-for-printing

27. nóvember 1998

Verðtrygging lánsfjármagns og vaxtastefna á Íslandi

Út er komið Sérrit Seðlabanka Íslands, hið þriðja í röðinni. Það ber heitið Verðtrygging lánsfjármagns og vaxtastefna á Íslandi og er eftir Bjarna Braga Jónsson, fyrrverandi aðstoðarbankastjóra Seðlabankans. Bjarni Bragi hefur lengi verið í hópi ötulustu hagfræðinga þessa lands, og fjallar efni ritsins um eitt af helstu hugðarefnum hans.  Í formála bankastjórnar segir að ritið byggi á ítarlegum rannsóknum höfundar og beri gott vitni um yfirgripsmikla þekkingu og fræðilega vandvirkni hans. Þá segir að megin tilgangur ritverksins sé að koma á framfæri og til varanlegrar varðveislu sögulegu yfirliti um reynsluna af verðtryggingu lánsfjármagns á Íslandi og þeirri vaxtastefnu sem henni var samofin.

Samhliða útkomu ritsins verður haldið málþing til heiðurs Bjarna Braga Jónssyni, þar sem fjallað verður um nokkur þeirra sviða efnahagsmála sem Bjarni hefur einkum beitt sér á. Málþingið er haldið í Sölvhóli í Seðlabanka Íslands frá klukkan 13 til 17 í dag, föstudaginn 27. nóvember, og er öllum opið á meðan húsrúm leyfir. Á málþinginu verða flutt eftirfarandi erindi:
 

 Bjarni Bragi Jónsson:
 Skuldaþyngsli og verðhjöðnun sem hagsveifluvaki

Þorvaldur Gylfason, prófessor við Háskóla Íslands:
Náttúra, vald og vöxtur

Már Guðmundsson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands:
Verðbólga, tekjustefna og verðtrygging

Markús Möller, deildarstjóri á hagfræðisviði Seðlabanka Íslands:
Kvóti, raungengi og tekjuskipting

Sigurður Snævarr, forstöðumaður við Þjóðhagsstofnun:
Velferðarríkið: Hin himneska stássstofa'

Guðmundur Jónsson, dósent Háskóla Íslands:
Að gera upp reikninga fortíðar: gagnsemi sögulegra þjóðhagsreikninga

Nr. 68/1998
27. nóvember 1998

Til baka